Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 408/2016

Nr. 408/2016 26. apríl 2016

REGLUGERÐ
um (22.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/845 frá 27. maí 2015 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asoxýstróbín, klórantranilípról, sýantranilípról, díkamba, dífenó­kónasól, fenpýroxímat, flúdíoxóníl, glúfosínatammóníum, imasapik, imasapýr, indoxakarb, ísoxaflútól, mandíprópamíð, penþíópýrað, própíkónasól, pýrimetaníl, spírótetramat og trínexapak í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 297/2015, frá 11. desember 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 28. janúar 2016, bls. 388.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/846 frá 28. maí 2015 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asetamípríð, ametóktradín, amísúlbróm, búpírímat, klófentesín, etefón, etirímól, flúópíkólíð, imasapik, própamókarb, pýraklóstróbín og táflúvalínat í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 297/2015, frá 11. desember 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 28. janúar 2016, bls. 457.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/868 frá 26. maí 2015 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir 2,4,5-T, barban, bínapakrýl, brómfosetýl, kamfeklór (toxa­fen), klórbúfam, klóroxúron, klósólínat, DNOC, díallat, dínóseb, dínóterb, díoxaþíón, etýlen­oxíð, fentínasetat, fentínhýdroxíð, flúsýkloxúrón, flúsýtrínat, formóþíón, mekarbam, meta­krífos, mónólínúron, fenótrín, prófam, pýrasófos, kínalfos, resmetrín, teknasen og vínklósólín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 297/2015, frá 11. desember 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 28. janúar 2016, bls. 506.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/896 frá 11. júní 2015 um breytingu á IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir Trichoderma polysporum af stofni IMI 206039, Trichoderma asperellum (áður T. harzianum) af stofni ICC012, T25 og TV1, Trichoderma atroviride (áður T. harzianum) af stofni IMI 206040 og T11, Trichoderma harzianum af stofni T-22 og ITEM 908, Trichoderma gamsii (áður T. viride) af stofni ICC080, Trichoderma asperellum (stofn T34), Trichoderma atroviride af stofni I-1237, geraníól, þýmól, súkrósa, járnsúlfat (járn(III)súlfat), járnsúlfat (járn(II)súlfat) og fólínsýru í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 297/2015, frá 11. desember 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 28. janúar 2016, bls. 577.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1040 frá 30. júní 2015 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asoxýstróbín, dímoxýstróbín, flúroxýpýr, metoxýfenósíð, metrafenón, oxadíargýl og tríbenúrón í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 298/2015, frá 11. desember 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 28. janúar 2016, bls. 582.
  6. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1101 frá 8. júlí 2015 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir dífenókónasól, flúópíkólíð, flúópýram, ísópýrasam og pendímetalín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 299/2015, frá 11. desember 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 28. janúar 2016, bls. 629.
  7. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1200 frá 22. júlí 2015 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir amíðsúlfúrón, fenhexamíð, kresoxímmetýl, þíaklópríð og trífloxý­stróbín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 299/2015, frá 11. desember 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 28. janúar 2016, bls. 656.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. apríl 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.


B deild - Útgáfud.: 23. maí 2016