Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1085/2019

Nr. 1085/2019 5. desember 2019

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1030/2017 um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins ÍST 85.

1. gr.

Í stað heitisins „Einkaleyfastofu“ í 4. gr. reglugerðarinnar kemur: Hugverkastofunnar.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2019“ í 1. og 2. málsl. 2. mgr. kemur: 31. des­ember 2020.
  2. Í stað heitisins „Einkaleyfastofunnar“ í 1., 6. og 7. málsl. 3. mgr. kemur: Hugverka­stof­unnar.
  3. Í stað orðsins „þrjá“ í 6. málsl. 3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: sex.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 11. mgr. 19. gr. sem og 33. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, með síðari breytingum sem og skv. 1. mgr. 4. gr. laga um faggildingu o.fl., nr. 24/2006, með síðari breytingum. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 5. desember 2019.

Katrín Jakobsdóttir.

Ragnhildur Arnljótsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 6. desember 2019