Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 216/2018

Nr. 216/2018 21. febrúar 2018

AUGLÝSING
um sveitarstjórnarkosningar 2018.

Á grundvelli 1. mgr. 1. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, með síðari breytingum, fara almennar sveitarstjórnarkosningar fram 26. maí 2018.

Frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn 5. maí 2018. Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til yfirkjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla getur hafist 31. mars 2018.

Þetta auglýsist hér með samkvæmt 2. mgr. 1. gr. framangreindra laga.

Dómsmálaráðuneytinu, 21. febrúar 2018.

Sigríður Á. Andersen.

Bryndís Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. febrúar 2018