1. gr.
Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 385/2024 um (25.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/834 frá 5. mars 2024 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 29. gr. b laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Matvælaráðuneytinu, 11. mars 2024.
Katrín Jakobsdóttir.
|