Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1309/2019

Nr. 1309/2019 12. desember 2019

GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu og sorpeyðingu fyrir heimili og frístundahús í Sveitarfélaginu Hornafirði.

1. gr.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar er heimilt að leggja á sérstakt gjald vegna meðferðar úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Árlegt grunngjald vegna sorphirðu, sorpeyðingar og endurvinnslu í sveitarfélaginu er sem hér segir.

  Íbúðir  
  Einingargjald sorphirðu á íbúð er 21.995 kr.
  Einingargjald sorpeyðingar er 13.826 kr.
  Óski greiðendur eftir fleiri sorpílátum greiðist viðbótargjald.  
  Sorphirðu og sorpeyðingargjald fyrir 240 l tunnu 18.696 kr.
  Lífrænt ílát 16.416 kr.
  Græn tunna 16.416 kr.

Hver húseigandi sem greiðir ofangreint gjald fyrir íbúð fær afhent eitt klippikort á ári.

Eitt klipp af klippikorti sem húseigendur fá afhent samsvarar 4 m³ á hverju klippikorti eru 16 klipp hvert klipp er 0,25 m³. Aukaklippikort fyrir 4 m³ kostar 8.000 kr. en miðað er við að 0,25 m³ geti verið allt að 25 kg.

Á hvert frístundahús er heimilt að leggja sérstakt gjald vegna sorphirðu og/eða sorpeyðingar. Þar sem sumarbústaðir eru 20 eða fleiri skal leggja á sérstakt gjald fyrir sorphirðu að viðbættu sorp­eyðingargjaldi enda verður komið upp gámasvæði við sumarbústaðahverf með yfir 20 bústöðum eða fleiri yfir mesta ferðamannatímann frá 1. júní – 1. september. Í sumarhúsahverfum með færri en 20 bústaði eru eingöngu lögð á gjöld vegna sorpeyðingar:

  Sorphirðugjald þar sem eru fleiri en 20 frístundahús   3.990 kr.
  Sorpeyðingargjald fyrir frístundahús   5.472 kr.

2. gr.

Gjald fyrir sorphirðu og sorpeyðingu samkvæmt 1. gr. hér að ofan er lagt á hverja íbúð í lög­sagnar­umdæmi sveitarfélagsins og er það innheimt með fasteignagjöldum.

3. gr.

Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með fjár­námi hjá viðkomandi án undangengins dóms, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Gjöld eru tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fast­eign í tvö ár eftir gjalddaga, sbr. lokamálsgrein 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunar­varnir nr. 7/1998.

4. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 11. gr. samþykktar nr. 236/2018 um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af bæjarráði þann 10. desember 2019 og staðfest af bæjar­stjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar þann 12. desember 2019 samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998.

Gjaldskráin tekur gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi eldri gjaldskrá nr. 478/2018.

Sveitarfélaginu Hornafirði, 12. desember 2019.

Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 6. janúar 2020