Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 417/2025

Nr. 417/2025 4. apríl 2025

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1294/2014 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 4. töluliður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2024/2512 frá 17. apríl 2024 um breyt­ingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda að því er varðar behensýru úr mustarðsfræjum til notkunar við framleiðslu á tilteknum ýruefnum. Reglugerðin var felld inn í EES-samn­inginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2025 frá 7. febrúar 2025. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 526.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 15. og 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

 

3. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 4. apríl 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 15. apríl 2025