Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 639/2023

Nr. 639/2023 6. júní 2023

REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 651/2001 um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar.

1. gr.

Á eftir 1. ml. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi við:

Matvælastofnun getur þó veitt leyfi til flutnings lamba með verndandi arfgerðir gegn riðu milli hjarða innan sýktra svæða. Stofnunin getur jafnframt veitt leyfi til flutnings á hrútum á sæðingar­stöðvar að því tilskildu að hægt sé að halda hrútunum í einangrun á stöðvunum.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, með síðari breytingum, og búvörulögum, nr. 99/1993, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 6. júní 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Margrét Björk Sigurðardóttir.


B deild - Útgáfud.: 20. júní 2023