Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 905/2020

Nr. 905/2020 31. ágúst 2020

AUGLÝSING
um fjöldatakmörkun í hjúkrunarfræði við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri.

1. gr.

Fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt til náms á 1. námsári í hjúkrunarfræði á vormisseri 2021 við heilbrigðisvísindasvið miðast við grunntöluna 75 nemendur.

 

2. gr.

Ákvörðun þessi, tekin af háskólaráði 25. júní 2020, skv. lögum nr. 85/2008 með síðari breyt­ingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 381/2020 um fjöldatakmörkun í hjúkrunar­fræði við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri.

 

Háskólanum á Akureyri, 31. ágúst 2020.

 

Eyjólfur Guðmundsson rektor.


B deild - Útgáfud.: 17. september 2020