Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 274/2017

Nr. 274/2017 28. mars 2017

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um lánshæfis- og greiðslumat, nr. 920/2013.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna „fasteignaviðskipta eða byggingar fasteignar til eigin nota“ í 4. málsl. 5. mgr. kemur: endurbóta á fasteign.
  2. Á eftir 5. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Við greiðslumat á einstaklingi sem er giftur eða í sambúð, en er einn lántaki, er lánveitanda heimilt að skipta neysluviðmiðum og rekstrarkostnaði skv. 8. gr. á milli hjóna eða sambýlis­fólks með þeim hætti sem endurspeglar aðstæður þeirra.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað „2%“ í 2. mgr. kemur: 1,5%.
  2. Í stað „720.000 kr.“ í 3. mgr. kemur: 420.000 kr.

3. gr.

Heiti reglugerðarinnar verður: Reglugerð um lánshæfis- og greiðslumat samkvæmt lögum um neyt­enda­lán og lögum um ábyrgðarmenn.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. b-lið 1. mgr. 27. gr. laga um neytendalán, nr. 33/2013, og samkvæmt heimild í 1. mgr. 4. gr. laga um ábyrgðarmenn, nr. 32/2009, og öðlast gildi 1. apríl 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. mars 2017.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Heimir Skarphéðinsson.


B deild - Útgáfud.: 31. mars 2017