1. gr.
2. málsliður 1. mgr. 8. gr. reglnanna verður svohljóðandi:
Í gæðaráði sitja gæðastjóri í forsæti, fulltrúar fræðasviða, forstöðumaður kennslumiðstöðvar og forstöðumaður nemendaskrár, auk tveggja fulltrúa nemenda sem Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri tilnefnir og tveggja fulltrúa sem starfsmenn tilnefna.
2. gr.
Reglur þessar, samþykktar af háskólaráði 15. október 2015, eru settar með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Háskólanum á Akureyri, 16. október 2015.
Eyjólfur Guðmundsson rektor.
Sigrún Stefánsdóttir, varaforseti háskólaráðs.
|