Utanríkisráðherra annast umsjón, rekstur og hagnýtingu allra öryggis- og varnarsvæða á Íslandi, þ.m.t. öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli, sbr. 1. mgr. 12. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008. Utanríkisráðherra fer jafnframt með yfirstjórn skipulags- og mannvirkjamála á öryggis- og varnarsvæðum, sbr. 2. mgr. 8. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Landhelgisgæsla Íslands fer með daglega umsjón og rekstur öryggis- og varnarsvæða í umboði utanríkisráðuneytisins á grundvelli heimildar í 7. gr. a. varnarmálalaga nr. 34/2008. Utanríkisráðuneytið samþykkti þann 8. ágúst 2023 breytingu á deiliskipulagi öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli, sjá auglýsingu nr. 964/2021 um landfræðileg mörk öryggis- og varnarsvæða. Breyting deiliskipulagsins nær yfir svæði fyrir nýtt aðgangs- og öryggishlið að öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Hliðið verður staðsett nærri gatnamótum Þjóðbrautar og Grænásbrautar í Reykjanesbæ. Helstu breytingar eru að afmarka nýjan byggingarreit og svæði fyrir vegi og bílastæði. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi. Nánari upplýsingar um deiliskipulagið er hægt að fá hjá skipulagsfulltrúa öryggis- og varnarsvæða ([email protected]). Hægt er að kæra samþykkt skipulagsins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.
Keflavíkurflugvelli, 9. ágúst 2023.
F.h. og í umboði utanríkisráðuneytisins og Landhelgisgæslu Íslands,
Sveinn Valdimarsson, skipulagsfulltrúi varnar- og öryggissvæða.
|