Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1691/2021

Nr. 1691/2021 16. desember 2021

GJALDSKRÁ
fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Dalabyggð.

1. gr.

Sveitarstjórn Dalabyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Dalabyggð og hreinsun rotþróa í Dala­byggð skv. gjaldskrá þessari og samþykkt nr. 800/2014 um fráveitur í Dalabyggð.

 

2. gr.

Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera:

Fyrir einbýlishús 68.987  kr. á hvert hús
Fyrir fjölbýlishús 22.991  kr. á hverja íbúð
Fyrir annað húsnæði 54  kr. á hvern m³ í húsnæðinu að 4.000 m³
  27  kr. á hvern m³ > 4.000 m³

Ef um tvöfalt frárennsliskerfi er að ræða skulu ofangreindar tölur margfaldaðar með tveimur.

 

3. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, sam­kvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001, með síðari breytingum. Fráveitugjald skal nema 0,19% af álagningarstofni fasteigna. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjald­dagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal inn­heimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

 

4. gr.

Rotþróargjald fyrir hverja rotþró skal vera eftirfarandi árlega:

Stærð í lítrum    kr.
0-2.000   9.552
2.001-4.000 11.983
4.001-6.000 13.644
6.001-8.000 16.861
8.001-10.000 22.295
Rotþró > 10.000   6.372 pr. umframrúmmetra

Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra. Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða kr. 3.801. Rotþró er tæmd þriðja hvert ár. Ákveði eigandi/forráða­maður eignar að tæma oftar greiðir hann allan kostnað af slíku.

 

5. gr.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

 

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 9. desember 2021 staðfestist hér með samkvæmt 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 og 59 gr. laga um holl­ustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1497/2020.

 

Búðardal, 16. desember 2021.

 

Kristján Sturluson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 6. janúar 2022