Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 283/2023

Nr. 283/2023 17. mars 2023

REGLUGERÐ
um (6.) breytingu á reglugerð nr. 462/2021 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 um smitandi dýrasjúkdóma (dýraheilbrigði).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 12. tl., svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1625 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/2035 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar reglur fyrir starfsstöðvar með landdýr í haldi og útungunar­stöðvar og rekjanleika tiltekinna landdýra í haldi og útungunareggja. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í i EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 129.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 93/1995, um matvæli, lög nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lög nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 17. mars 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Margrét Björk Sigurðardóttir.


B deild - Útgáfud.: 21. mars 2023