Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 94/2016

Nr. 94/2016 19. september 2016

LÖG
um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, með síðari breytingum (síld og makríll).

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu: 

1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða VIII í lögunum:

  1. Í stað orðanna „20 lestum“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 35 lestum.
  2. 1. málsl. 3. mgr. orðast svo: Verð á aflaheimildum í síld og makríl skv. 1. mgr. skal á hverjum tíma nema sömu fjárhæð og veiðigjald fyrir síld og makríl samkvæmt lögum um veiðigjald, nr. 74/2012.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört í Reykjavík, 19. september 2016.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Gunnar Bragi Sveinsson.


A deild - Útgáfud.: 19. september 2016