Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 690/2019

Nr. 690/2019 17. júlí 2019

REGLUGERÐ
um heimild Fjármálaeftirlitsins til að taka gildar lýsingar frá öðrum EES-ríkjum samkvæmt reglugerð ESB 2017/1129 um lýsingu sem birta skal við almenn útboð verðbréfa eða vegna töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði.

1. gr.

Fjármálaeftirlitinu er heimilt að taka gildar lýsingar, auk viðauka við þær, sem staðfestar hafa verið af lögbærum yfirvöldum á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt ákvæðum reglugerðar Evrópu­þingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 frá 14. júní 2017 um lýsingu sem birta skal við almenn útboð verðbréfa eða vegna töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði og um niður­fellingu á tilskipun 2003/71/EB.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 54. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, og öðlast gildi 21. júlí 2019.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 17. júlí 2019.

F. h. r.

Guðmundur Kári Kárason.

Sóley Ragnarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 19. júlí 2019