Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1495/2023

Nr. 1495/2023 6. desember 2023

GJALDSKRÁ
skipulags- og byggingarmála í Mosfellsbæ, vegna leyfisveitinga, umsýslu og þjónustu.

1. gr.

Fyrir útgáfu leyfa, úttektir, vottorð, skjalagerð, yfirlestur gagna, auglýsingar, kynningar og aðra umsýslu og þjónustu sem Mosfellsbær veitir vegna byggingar- og framkvæmdaleyfisskyldra fram­kvæmda, deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum, innheimtir Mosfellsbær í umboði bæjar­stjórnar gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

2. gr.

Fyrir neðangreindar úttektir og með tilvísun til 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 skal innheimta gjöld sem hér segir:

    kr.     
A) Úttekt vegna byggingarstjóraskipta, sbr. 30. gr. 26.900
B) Áfangaúttekt, sbr. 34. gr. 14.400
C) Lokaúttekt, sbr. 36. gr.  
  C1) 5 íbúðir eða færri og atvinnuhús undir 2.000 m² 26.900
  C2) 6-19 íbúðir og atvinnuhús 2.000 - 10.000 m² 40.200
  C3) Fleiri en 20 íbúðir og atvinnuhús stærra en 10.000 m² 53.600
D) Stöðuúttekt, öryggisúttekt, sbr. 35. gr. 29.300
E) Byggingarleyfi / byggingarheimild, sbr. 13. gr., afgreiðslugjald 15.200
F) Byggingarleyfi / byggingarheimild, sbr. 13. gr., gjald/m³ í húsi 146
G) Stöðuleyfi fyrir gáma og aðra lausamuni skv. gr. 2.6.1. 112/2012 til eins árs 74.100
H) Tilkynningarskyldar framkvæmdir, yfirferð og afgreiðslugjald 26.900

 

3. gr.

Byggingarfulltrúi áætlar fjölda stöðuúttekta skv. D-lið 2. gr. áður en byggingarleyfi er gefið út.

 

4. gr.

Fyrir yfirferð aðal-, sér-, og byggingaruppdrátta auk greinargerða skal innheimta gjöld sem hér segir, sbr. 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010:

    kr.     
A) Vegna einbýlishúsa:  
  A1) aðaluppdrættir 79.200
  A2) séruppdrættir 79.200
B) Vegna par- og raðhúsa, pr. íbúð:  
  B1) aðaluppdrættir 45.900
  B2) séruppdrættir 45.900
C) Vegna fjölbýlishúsa:  
  C1) aðaluppdrættir fyrir fyrstu 5 íbúðirnar, pr. íbúð 21.300
  C2) séruppdrættir fyrir fyrstu 5 íbúðirnar, pr. íbúð 21.300
  C3) aðaluppdrættir fyrir 6. – 19. íbúð, pr. íbúð 9.200
  C4) séruppdrættir fyrir 6. – 19. íbúð, pr. íbúð 9.200
  C5) aðaluppdrættir fyrir 20 og fleiri, pr. íbúð 5.400
  C6) séruppdrættir fyrir 20 og fleiri, pr. íbúð 5.400
D) Vegna annars húsnæðis eftir stærð, þ.m.t. atvinnu- og gripahús:  
  D1) aðaluppdrættir fyrir húsnæði allt að 2.000 m² brúttó 146.700
  D2) séruppdrættir fyrir húsnæði allt að 2.000 m² brúttó 146.700
  D3) aðaluppdrættir fyrir húsnæði milli 2.000 - 10.000 m² brúttó 160.700
  D4) séruppdrættir fyrir húsnæði milli 2.000 - 10.000 m² brúttó 160.700
  D5) aðaluppdrættir fyrir húsnæði stærra en 10.000 m² brúttó 202.700
  D6) séruppdrættir fyrir húsnæði stærra en 10.000 m² brúttó 202.700
E) Minni byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofa. o.fl., aðal-/séruppdrættir 34.900
F) Breyting á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis, aðal-/séruppdrættir 54.900
G) Breyting á innra skipulagi íbúðarhúsnæðis, útlitsbreyting, svalaskýli, lóð o.fl., aðal-/séruppdrættir 21.200
H) Aðkeypt skoðun og yfirferð á uppdráttum og greinargerðum skv. samningi/
    reikningi

 

5. gr.

Fyrir neðangreind vottorð, skjalagerð og yfirlestur ýmiss konar skal innheimta gjöld sem hér segir, sbr. 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010:

    kr.     
A) Lokaúttektarvottorð, sbr. 36. gr. 17.000
B) Fokheldisvottorð, sbr. 55. gr. 17.000
C) Stöðuvottorð, sbr. 55. gr. 17.000
D) Stofnskjalagerð, nýskráning, hver lóð í dreifbýli 49.000
E) Stofnskjalagerð, nýskráning, hver lóð í þéttbýli 28.100
F) Yfirlestur eignaskiptayfirlýsinga, stór 24.800
G) Yfirlestur eignaskiptayfirlýsinga, lítil 28.100
H) Samrunaskjalagerð (hver lóð) 37.400
I) Útsetning húss og lóðar, með tékkmælingu 148.800
J) Útsetning húss og lóðar, einföld útsetning 89.800
K) Nafnabreyting, lands eða lóðar 24.800
L) Skjalagerð/lóðaleigusamningar (hver lóð) 28.100
M) Stofnun lóðar í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands skv. gjaldskrá HMS.  
N) Aðkeypt vinna við gerð og breytingar, s.s. lóða- og hæðarblöð skv. samningi/
    reikningi
O) Skráning viðbótar fasteignanúmers eða fjölgun á íbúðum, skv. samningi og samþykkt bæjarráðs Mosfellsbæjar.  

 

6. gr.

Fyrir hverja skoðun/skoðunarskýrslu byggingafulltrúa á þegar byggðum íbúðum skal innheimta skoðunargjald sem hér segir:

    kr.     
A) Skoðunargjald pr. íbúð í fjöleignarhúsi 27.300
B) Skoðunargjald fyrir einbýlis-, par- og raðhús. 40.300

 

7. gr.

Vegna grenndarkynninga skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, framkvæmdaleyfa skv. 13. og 14. gr. og vegna deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum, sbr. 2. mgr. 20. gr. og 2. mgr. 38. gr. sömu laga, skal innheimta gjöld sem hér segir:

Skipulagsnefnd innheimtir einnig afgreiðslu- og fyrirspurnargjald vegna fyrirtöku nýrra eða endurupptöku mála:

    kr.     
  Afgreiðslu- og fyrirspurnargjald skipulagsnefndar 17.000
A) Grenndarkynning:  
  A1) Sbr. 44. gr. á kynningu leyfisumsóknar 55.000
B) Fyrir afhendingu grunn- og landupplýsinga fyrir skipulagsvinnu 17.000
C) Vegna breytingar á aðalskipulagi, sbr. 2. mgr. 20. gr. og 36. gr.:  
  C1) Gerð tillögu að breytingu skv. samningi/
      reikningi
  C2) Umsýslu- og auglýsingakostnaður 1. mgr. 36. gr. 199.100
  C3) Umsýslu- og auglýsingakostnaður 2. mgr. 36. gr. 117.100
D) Vegna deiliskipulags, sbr. 40. gr. og 43. gr.:  
  D1) Umsýsla og kynning skipulagslýsingar 91.900
  D2) Gerð deiliskipulagstillögu eða breytingu skv. samningi/
    reikningi  
  D3) Gerð tillögu að einföldum breytingum 144.400
  D4) Umsýslu- og kynningarkostnaður v. nýs deiliskipulags 199.100
  D5) Umsýslu- og auglýsingakostnaður v. breytinga skv. 1. mgr. 43. gr. 153.100
  D6) Umsýslu og kynningarkostnaður v. breytinga skv. 2. mgr. 43. gr. 92.000
  D7) Fyrir afgreiðslu tillögu. sbr. 3. mgr. 44. gr. og 3. mgr. 43. gr. 33.000
E) Vegna framkvæmdaleyfa:    
  E1) Leyfisgjald vegna framkvæmdaleyfis skv. 14. gr. 147.300
  E2) Leyfisgjald vegna annarra framkvæmdaleyfa 92.000
  E3) Eftirlit umfram eina ferð sem er innifalin í E1 og E2; pr. ferð 33.000
         

8. gr.

Vegna beiðni um yfirborðs- og umhverfisbreytinga þar sem vikið er frá auglýstu deiliskipulagi, skal kostnaðarþátttaka umsækjanda samsvara framkvæmdakostnaði sem hér segir:

    kr.     
A) Sögun malbik / steypa (fyrir hvern metra) 2.900
B) Endurnýjun steyptrar stéttar 10 cm (fyrir hvern fermetra) 12.900
C) Steypt stétt fjarlægð og endursteypt 15 cm (fyrir hvern fermetra) 21.400
D) Malbikun götu (fyrir hvern fermetra) 12.900
E) Kantur endursteyptur (fyrir hvern metra) 11.500
F) Færsla á ljósastaur (fyrir hvern staur) 249.600
G) Færsla á rafmagnskassa (fyrir hvern kassa) 470.400

Innheimt verður sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni fyrir kostnað vegna hönnunar gatna, gerð mæli-, lóðar- og hæðarblaða auk aðkeyptrar vinnu og efniskostnaðar við breytingu á lögnum og götusniði.

 

9. gr.

  Tímagjald starfsmanns á umhverfissviði vegna annarra/frekari verka 17.000

 

10. gr.

Mosfellsbær mun annast innheimtu allra gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari skv. 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

11. gr.

Gjalddagi gjalda skv. 2., 4. og 5. gr. er áður en byggingarleyfi er útgefið sbr. ákvæði 53. gr. laga um mannvirki.

Gjalddagi gjalda skv. 7. gr. er sem hér segir:

A) Skv. lið A: Fyrir kynningu.
B) Skv. lið B: Eftir afhendingu gagna.
C) Skv. lið C: Við samþykktir og afgreiðslur.
D) Skv. lið D: Við samþykktir og afgreiðslur.
E) Skv. lið E: Við útgáfu leyfis.

 

12. gr.

Gjöld vegna áfangaúttekta skal endurgreiða komi ekki til verkframkvæmda á gildistíma bygg­ingarleyfis.

 

13. gr.

Virðisaukaskattur leggst ekki á gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

14. gr.

Gjöld innheimt samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til greiðslu sannanlegs kostnaðar við einstaka verkþætti gjaldskrárinnar.

 

15. gr.

Gjaldskrá þessi, sem öðlast þegar gildi, er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar á 840. fundi 6. desember 2023 með heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 51. gr. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1704/2022.

 

Mosfellsbæ, 6. desember 2023.

 

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2023