Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 185/2023

Nr. 185/2023 24. febrúar 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1188/2014, um endurgreiðslu á virðisaukaskatti til aðila búsettra erlendis, með síðari breytingum.

1. gr.

Í stað fjárhæðarinnar „6.000 kr.“ í c-lið 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 12.000 kr.

 

2. gr.

Í stað fylgiskjals sem vísað er til í 3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur nýtt fylgiskjal sem birt er með reglugerð þessari.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 43. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. maí 2023. Við birtingu reglugerðar þessarar fellur brott reglu­gerð nr. 99/2023, um breytingu á reglugerð nr. 1188/2014, um endurgreiðslu á virðisaukaskatti til aðila búsettra erlendis, með síðari breytingum.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. febrúar 2023.

 

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Steinar Örn Steinarsson.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 27. febrúar 2023