Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 454/2023

Nr. 454/2023 8. maí 2023

AUGLÝSING
um (3.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1370/2022, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftir­farandi sveitarfélögum:

 

Húnabyggð (breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda í byggðarlagi og/eða á Skagaströnd, niðurfelling vinnsluskyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Blönduóss með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipta 75% úthlutaðs byggðakvóta jafnt á milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðar­innar, og 25% skal skipt í hlutfalli við hlutdeild í Húnaflóa­rækju miðað við hlutdeild skipanna 1. september 2022.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023 í Blöndóshöfn og/eða í Skagastrandarhöfn.
  c) Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  d) Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.

 

Ísafjarðarbær (breyting á almennum skilyrðum, breyting á viðmiðun um úthlutun, afmörkun landaðs afla, löndunarskylda).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Flateyrar, Hnífsdals, Ísafjarðar, Suðureyrar og Þingeyrar með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði a-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Hafa leyfi til veiða í atvinnu­skyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, eða frístundaveiðileyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests.
  b) Ákvæði c-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lög­aðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 1. júlí 2022.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal fyrst úthluta bátum með frístundaleyfi sbr. a-lið, 1 þorsk­ígildis­tonni á bát, 40% af því sem eftir stendur skal skipt jafnt milli annarra skipa, þó ekki meira, í þorskígildum talið, en viðkomandi bátur landaði á fiskveiðiárinu 2021/2022, afganginum skal skipt hlutfallslega, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið, sem landað var innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022.
  d) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli sem landað er í sveitar­félaginu úr fiskiskipum sem ekki eru skráð innan sveitarfélagsins, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.

 

Langanesbyggð (breyting á almennum skilyrðum, breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda innan sveitarfélags, vinnsluskylda innan sveitarfélags).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Bakkafjarðar og Þórshafnar með eftirfarandi breytingum:

  a) Við 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Skráð stærð fiski­skips er minni en 300 brúttótonn.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkom­andi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorsk­ígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022 að frádregnu því aflamarki sem tilkomið er vegna úthlutunar á sértæku aflamarki Byggðastofnunar.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan hlutaðeigandi sveitarfélags á tímabilinu frá 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.

 

Súðavíkurhreppur (breyting á almennum skilyrðum, breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda innan byggðarlags).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Súðavíkur með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði a-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, eða frístundaveiðileyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega að teknu tilliti til hámarksúthlutunar hvers flokks (a-c) miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, sem landað var innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022:
    a. Alls 85 þorskígildistonnum skal úthlutað til fiskiskipa með frístundaleyfi.
    b. Alls 64 þorskígildistonnum skal úthlutað til fiskiskipa sem veiðileyfi hafa með króka­aflamarki að hámarki 16 tonn.
    c. Alls 79 þorskígildistonnum skal úthlutað í jöfnum skiptum til aflamarksskipa yfir 100 brúttórúmlestir.
    d. Aflamarki skv. staflið b sem annars hefði ekki verið úthlutað skal skipt milli fiskiskipa sem tilgreind eru í stafliðum a og c til hækkunar á hámarksúthlutun.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla í Súðavík sem telja á til byggðakvóta til vinnslu í Súðavík á tímabilinu frá 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.

 

Sveitarfélagið Árborg (vinnsluskylda innan sveitarfélags).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Eyrarbakka og Stokkseyrar með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu, innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.

 

Skagafjörður (breyting á viðmiðun úthlutunar, löndunarskylda innan sveitarfélags).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Sauðárkróks og Hofsóss með eftirfarandi breytingum:

  a) Nýr málsl. bætist við 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar svohljóðandi: Hámarksúthlutun fiskiskipa yfir 30 brúttótonnum af því aflamarki sem fallið hefur innan viðkomandi byggðar­­lags verður 7,5 þorskígildistonn á skip.
  b) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli sem er landað í byggðarlagi úr fiskiskipum sem ekki eru skráð innan viðkomandi sveitarfélags, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. sept­ember 2022 til 31. ágúst 2023.

 

Sveitarfélagið Skagaströnd (breyting á viðmiðun úthlutunar, löndunarskylda innan byggðarlags).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Skagastrandar með eftir­farandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt að teknu tilliti til hámarksúthlutunar hvers flokks (a-b) miðað við allan land­aðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið, sem landað var innan sveitar­félagsins á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022:
    a. Alls 40 þorskígildistonnum skal skipt jafnt milli fiskiskipa með hlutdeild í veiðum á rækju á grunnslóð á Húnaflóa.
    b. Eftirstöðvum aflamarks skal skipt hlutfallslega milli fiskiskipa að teknu tilliti til 35 þorskígildistonna hámarki til fiskiskips.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. sept­ember 2022 til 31. ágúst 2023.

 

Tálknafjarðarhreppur (breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda innan byggðar­lags, vinnsluskylda).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Tálknafjarðar með eftir­farandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. og 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að: 50% skal skipt jafnt á þá báta sem landað hafa sínum afla fiskveiðiárið 2021/2022 í Tálknafirði og uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar. 50% skal skipt hlut­fallslega, miðað við allan landaðan botnfiskafla í Tálknafirði í tegundum sem hafa þorsk­ígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa í Tálknafirði þeim afla sem telja á til byggðakvóta Tálknafjarðar og til vinnslu á tímabilinu frá 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 8. maí 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 10. maí 2023