Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 932/2022

Nr. 932/2022 24. júní 2022

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 483/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/627 um samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu, sem eru ætlaðar til manneldis, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1709 frá 23. september 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/627 að því er varðar samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 104/2022, frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 194.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 24. júní 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 17. ágúst 2022