Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 44/2016

Nr. 44/2016 12. janúar 2016

AUGLÝSING
um álagningu opinberra gjalda á árinu 2016.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 30. júní 2016 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á menn. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 31. október 2016. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 12. janúar 2016.

F. h. r.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Ása Ögmundsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2016