Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1006/2019

Nr. 1006/2019 5. nóvember 2019

REGLUGERÐ
um (16.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, svohljóðandi:

30)   Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/680 frá 30. apríl 2019 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2019 frá 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 82 frá 10. október 2019, bls. 172-173.
31)   Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/681 frá 30. apríl 2019 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2019 frá 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 82 frá 10. október 2019, bls. 174-175.
32)   Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/698 frá 30. apríl 2019 um breytingu á III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahags­svæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 231/2019 frá 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 82 frá 10. október 2019, bls. 176-179.
33)   Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/831 frá 22. maí 2019 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrti­vörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efna­hags­svæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 232/2019 frá 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 86 frá 24. október 2019, bls. 406-440.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/680 frá 30. apríl 2019 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrti­vörur.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/681 frá 30. apríl 2019 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrti­vörur.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/698 frá 30. apríl 2019 um breytingu á III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrti­vörur.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/831 frá 22. maí 2019 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrti­vörur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölulið 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 5. nóvember 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 20. nóvember 2019