Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1214/2016

Nr. 1214/2016 13. desember 2016

GJALDSKRÁ
Veitna ohf. fyrir heitt vatn.

1. gr.

Almennt.

Gjaldskrá þessi gildir fyrir heitt vatn á veitusvæðum Veitna ohf. Greiða skal í ríkissjóð sérstakan skatt af heitu vatni, 2% af smásöluverði. Heimilt er að miða innheimtu skattsins við áætlaða sölu. Virðisaukaskattur bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, 11% af vatni til húshitunar og laugarvatns en 24% til annarra nota.

Á veitusvæðum gilda mismunandi taxtar í þéttbýli og dreifbýli.

2. gr.

Almennir taxtar, mæld notkun.

Taxti Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H1 Einingaverð Sala í þéttbýli 125,32 2,51 141,89 kr./m³
J1 Einingaverð Sala í dreifbýli 165,39 3,31 187,26 kr./m³

Taxtarnir gilda fyrir alla húshitun, almenna heimilisnotkun og snjóbræðslu.

Heitt vatn er selt samkvæmt rúmmetramælingu.

Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu heits vatns.

Veitum er ekki skylt að veita afslátt af sölu heits vatns vegna lágs hitastigs þess á afhendingarstað enda geri Veitur þær ráðstafanir sem má ætlast til af henni til að halda hitastiginu í eðlilegu horfi.

Sækja skal skriflega um alla taxta aðra en ofangreinda taxta.

Heimilt er að innheimta 30% af áætluðum vatnskaupum hjá þeim húseigendum sem ekki eru farnir að kaupa heitt vatn um heimæð ári eftir að hún er tilbúin til notkunar.

3. gr.

Almennir taxtar, fast verð.

Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 41,32 0,83 46,79 kr./dag
H1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 86,33 1,73 97,75 kr./dag
H1C Fast verð C: 65 mm og stærri 174,96 3,50 198,09 kr./dag
             
Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
J1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 46,78 0,94 52,97 kr./dag
J1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 97,52 1,95 110,41 kr./dag
J1C Fast verð C: 65 mm og stærri 197,34 3,95 223,43 kr./dag

Fast verð er hluti af almennum taxta og í öllum öðrum samningum þar sem selt er samkvæmt mæli.

Fast verð er fyrir föstum kostnaði og er háð stærð mælis. Gjaldinu er dreift jafnt niður á tímabil reikninga.

4. gr.

Gróðurhús og sundlaugar.

Taxti Tegund Tegund Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H3 Einingaverð Gróðurhús 62,63 1,25 70,91 kr./m³
H4 Einingaverð Sundlaugar 62,63 1,25 70,91 kr./m³

Skýringar:

Taxtar H3 og H4 varða ekki forgangsvatn. Taxtarnir gilda þar sem nægilegt vatn er til staðar og fullnægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Veitna ohf.

H4 taxtinn gildir fyrir sundlaugar, set- og vaðlaugar. Heimilt er að tengja baðvatn þessum taxta ef sundlaugin er aðalþáttur í starfsemi kaupanda.

H3 taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir í atvinnuskyni.

5. gr.

Snjóbræðsla, fiskeldi, íþróttavellir utanhúss og iðnaðarvatn í framleiðsluferla.

Taxti Tegund Tegund Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
V1 Einingaverð Snjóbræðsla 125,32 2,51 158,51 kr./m³
V2 Einingaverð Fiskeldi 62,63 1,25 79,21 kr./m³
V3 Einingaverð Íþróttavellir, utanhúss 94,09 1,88 119,00 kr./m³
V4 Einingaverð Iðnaðarvatn í framleiðsluferla 62,63 1,25 79,21 kr./m³

Skýringar:

Taxtar V1 til V4 varða ekki forgangsvatn. Þeir gilda þar sem nægilegt vatn er til staðar og full­nægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Veitna ohf.

V1 taxtinn gildir fyrir sértengt snjóbræðslukerfi.

V2 taxtinn gildir fyrir fiskeldisfyrirtæki í framleiðslu.

V3 taxtinn gildir fyrir upphitaða íþróttavelli utanhúss.

V4 taxtinn gildir fyrir atvinnustarfsemi sem nýtir heitt vatn beint í framleiðsluferla. Taxtinn gildir í engum tilvikum fyrir húshitun eða kranavatn.

5.1

Snjóbræðsla.

S1. Snjóbræðslutaxti, framrásarvatn (aðeins í þéttbýli).

Taxti Tegund   Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
  Fast verð   524,96 10,50 663,97 kr./dag
SR1 Lágverð Mælt þegar útihiti er hærri en -5°C 62,63 1,25 79,21 kr./m³
SR1 Háverð Mælt þegar útihiti er lægri en -5°C 187,96 3,76 237,73 kr./m³

Skýringar:

Mæling á heitu vatni fer fram á afhendingarstað með mælitækjum (tímamæling), sem Veitur ohf. leggja til.

Sækja þarf skriflega um taxtann á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem Veitur ohf. leggja til.

S2. Snjóbræðslutaxti, framrásarvatn með flatargjaldi (aðeins í þéttbýli).

Taxti Tegund   Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
  Fast verð   524,96 10,50 663,97 kr./dag
SR2 Lágverð Mælt þegar útihiti er hærri en -5°C 62,63 1,25 79,21 kr./m³
SR2 Háverð Mælt þegar útihiti er lægri en -5°C 187,96 3,76 237,73 kr./m³
SR2 Daggjald Fyrir hvern m² snjóbræðsluflatar 0,15 0,003 0,19 kr./m²

Skýringar:

Mæling á heitu vatni fer fram á afhendingarstað með mælitækjum (tímamæling), sem Veitur ohf. leggja til.

Taxtinn miðast við að tvöfalt dreifikerfi sé til staðar hjá kaupanda. Daggjaldið er á hvern m² snjóbræðsluflatar.

Sækja þarf skriflega um taxtann á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem Veitur ohf. leggja til.

6. gr.

Frístundahús – hemlataxtar.

Dreifbýli Taxti   Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
Sumarhús
H1
Fast verð Kr. á dag fyrir 3 mínútulítra 305,64 6,11 346,04 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra umfr. 3 l 61,13 1,22 69,21 kr./dag

Skýringar:

Gildir fyrir frístundahús á svæðum Austurveitu, Grímsnesveitu, Hlíðaveitu, Ölfusveitu, Skorra­dals­veitu, Munaðarnesveitu og Norðurárdalsveitu.

Hitaveituvatn til frístundahúsa er selt um hemil til takmörkunar á rennsli. Mínútulítri táknar það rennsli sem gefur 1 lítra af vatni á 1 mínútu.

Innifalið í grunnverði eru 3 mínútulítrar, sem er minnsta magn sem afhent er til sumarhúsa.

Hægt er að sækja um aukið vatnsmagn hvenær sem er en umsókn um minnkun er aðeins fram­kvæmd mánuðina apríl og maí ár hvert.

Hugsanlegt er að svæðisbundið sé ekki nægt vatn til að verða við óskum um að kaupa aukið vatns­magn.

Heimilt er að innheimta 30% af áætluðum vatnskaupum hjá þeim húseigendum sem ekki eru farnir að kaupa heitt vatn um heimæð ári eftir að hún er tilbúin til notkunar.

7. gr.

Verðskrá fyrir Rangárveitu dreifbýli.

Samkvæmt reglugerð nr. 10/2012 um breytingu á reglugerð nr. 297/2006, um Orkuveitu Reykja­víkur með síðari breytingum, nær veitusvæði fyrirtækisins til Hellu og Hvolsvallar og nærliggj­andi sveita, eins og það veitusvæði er skilgreint í samningi frá 25. janúar 2005 milli Orku­veitu Reykjavíkur, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Ásahrepps. Í 3. mgr. 6. gr. reglu­gerðar um Orkuveitu Reykja­víkur segir einnig að í þeim tilvikum þar sem á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur gilda mismunandi taxtar í þéttbýli og dreifbýli skal skilgreining á milli þéttbýlis og dreifbýlis fylgja því hvernig viðkomandi sveitarfélag skilgreinir þéttbýli á aðalskipulagi. Ákvæði 7. gr. gjaldskrár þessarar gilda eingöngu fyrir dreifbýli á því svæði sem framangreindur samningur tekur til. Önnur ákvæði gjaldskrárinnar, s.s. ákvæði 8. gr. um heimlagnir gilda einnig á því svæði eftir því sem við á.

7.1

Mæld notkun.

Taxti Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
J1 Einingaverð Sala í dreifbýli 165,39 3,31 187,26 kr./m³

7.2

Fast verð.

Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
J1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 46,78 0,94 52,97 kr./dag
J1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 97,52 1,95 110,41 kr./dag
J1C Fast verð C: 65 mm og stærri 197,34 3,95 223,43 kr./dag

7.3

Íbúðarhús – blandaður taxti.

Taxti Tegund Grunnur Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
HR5 Fast verð Grunndagverð 53,44 1,07 60,51 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra 60,99 1,22 69,05 kr./dag
Einingaverð Neysluvatn um rennslismæli 159,22 3,18 180,26 kr./m³

7.4

Frístundahús – hemlataxti.

Taxti Tegund Grunnur Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
HR4 Fast verð Kr. á dag fyrir 3 mínútulítra 305,64 6,11  346,04 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra umfram 3 l 61,13 1,22   69,21 kr./dag

8. gr.

Heimlagnir – almennt.

Almennt verð heimlagna gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verð gildir ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Reiknist áætlaður heildarkostnaður við heimlögnina meira en 50% hærri en verðskrá segir til um þá greiðir umsækjandi til viðbótar allan kostnað sem verður umfram þessi 50%. Viðbótarkostnaður sam­kvæmt þessari reiknireglu er ekki innheimtur samhliða innheimtu yfirlengdargjalda. Geri hús­eigandi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitarfélags t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna. Hús­eig­andi sem óskar eftir breytingu eða færslu á inntaksbúnaði eða inntaksstað ber af því allan kostnað. Sama gildir um tímabundna aftengingu.

8.1

Heitt vatn – heimæðagjöld.

Neðangreint verð gildir í þéttbýli þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 50 m, 2% yfir­lengdar­gjald er tekið fyrir hvern metra. Sama gildir um hvern metra sem lengd heimæðar fer yfir 20 m innan lóðarmarka. Stærð heimæðar fyrir almenna upphitun tekur mið af rúmmáli húsnæðis en stærð heimæðar fyrir aðra notkun ákvarðast af tilgreindri vatnsþörf í umsókn að höfðu samráði við Veitur ohf. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshit­unar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota.

Taxti Málstærð Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H1H 20 mm 312.279 346.630 387.226
H1H 25 mm 487.935 541.608 605.039
H1H 32 mm 799.433 887.371 991.297
H1H 40 mm 1.249.113 1.386.515 1.548.900
H1H 50 mm 1.951.739 2.166.430 2.420.156

Skýringar:

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 50 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.

8.2

Heitt vatn – bráðabirgðatengingar.

Taxti Málstærð Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H2H 20 mm 93.684 103.989 116.168

Skýringar:

Verðið gildir fyrir tengingu við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk ásamt einni tengi­grind. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu er hún gjaldfærð í samræmi við raun­kostnað.

8.3

Heimæðagjöld í dreifbýli (lögbýli og heilsárshús).

Neðangreind verð gilda þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 70 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Stærð heimæðar ákvarðast af tilgreindu vatnsmagni í umsókn en stærð heimæðar til upphitunar húsnæðis tekur mið af rúmmáli þess. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota.

Taxti Málstærð
m.v. stál
Málstærð
m.v. PEX
Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H3H 20 mm 25 mm 405.963 450.619 503.394
H3H 25 mm 32 mm 634.315 704.090 786.551
H3H 32 mm   1.039.262 1.153.581 1.288.685

Skýringar:

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 32 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.

8.4

Heimæðagjöld fyrir frístundahús (í samræmi við byggingarleyfi).

Neðangreind verð gilda í frístundahúsabyggðum þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 100 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota.

Taxti Málstærð, skýring Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H4H 20 mm PEX heimæð lögð stök frá stofn- eða götuæð 588.526 653.264 729.772
H5H 20 mm PEX heimæð lögð samtímis og í sama skurði og kaldavatnsæð OR 414.370 459.951 513.819

Skýringar:

Heitavatnsheimæðar fyrir frístundahús eru lagðar með 20 mm PEX. Ósk um stærri heimæð fellur undir mat Veitna ohf. á styrk dreifikerfis og verði ósk samþykkt greiðir umsækjandi allan viðbótar­kostnað sem fylgir stærri heimæð og þ.m.t. styrkingu á aðveitu.

9. gr.

Merki frá mæli fyrir notanda.

Beiðni notanda um merki frá mæli til nota við eigið stjórn- eða upplýsingakerfi.

Taxti Skýring Án vsk kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H6H Tengigjald fyrir aðgang að púlsum frá mæli, uppsett tengidós 15.646 17.367 19.401
H7H Ótímabær mælaskipti, 15-20 mm 10.000 11.100 12.400
H8H Ótímabær mælaskipti, 25-50 mm 25.000 33.300 37.200
H9H Ótímabær mælaskipti, 65 mm 30.000 33.300 37.200

Skýringar:

Tengigjald er greitt fyrir aðgengi að merki frá mæli. Veitur ohf. setja upp tengidós sem er aðgengi­leg fyrir notanda að tengja við sinn búnað.

Þurfi að skipta um mæli þar sem mælir er ekki hæfur til að gefa frá sér merki þarf notandi að greiða fyrir mælaskipti og dýrari mæli til viðbótar við tengigjald.

Veitur ohf. taka enga ábyrgð á púlsútgangi eða notkun hans og vegna tækniþróunar mæla er ekki mögulegt að ábyrgjast að næsta mælitæki verði með sambærilegum útgangi.

10. gr.

Þjónustugjöld.

Texti Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
Seðilgjald 193   239
Tilkynningar- og greiðslugjald 92   114
Aukaálestur 2.150 2.385 2.666
Skipting orkureiknings 2.698 2.995 3.346
Innheimtuviðvörun1 950    
Lokunargjald 3.067 3.404 3.803
Lokunargjald v/sumarhúss eða lokun að beiðni notanda 15.350 17.039 19.034
Endurkoma vegna tengingar sumarhúss2 17.809 19.768 22.083
Útkall v/búnaðar notanda í sumarhúsi3 14.247 15.814 17.666
Gjald fyrir innheimtuaðgerð þar sem nauðsynlegt er að grafa niður á heimæð4 312.279 346.630 387.226

Skýringar:

120 dögum eftir gjalddaga.
2 Gjald fyrir endurkomu þegar umsækjandi hefur ekki uppfyllt sín skilyrði við áhleypingu.
3 Gjald fyrir útkall vegna tilkynningar notanda um bilun sem reynist vera í búnaði húseiganda. Sé leitað eftir þjónustu utan dagvinnutíma reiknast 55% álag.
4 25% álag reiknast á innheimtuaðgerð utan þéttbýlis.

Gjaldskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 136/2013 um Orkuveitu Reykjavíkur og orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, sbr. reglugerð fyrir Orkuveitu Reykjavíkur nr. 297/2006, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi eldri gjaldskrá sama efnis nr. 683/2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. desember 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2016