Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 118/2018

Nr. 118/2018 19. janúar 2018

AUGLÝSING
um álagningu opinberra gjalda á árinu 2018.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 31. maí 2018 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á menn. Álagningu á lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 28. september 2018. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 19. janúar 2018.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 2. febrúar 2018