Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 166/2019

Nr. 166/2019 15. febrúar 2019

GJALDSKRÁ
fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

1. gr.

Gjald fyrir útselda vinnu sérfræðings.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir rannsóknir og ráð­gjöf sem falla undir 4. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur sam­kvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992. Gjald fyrir hverja klukkustund skal vera eftirfarandi án vsk:

  a) Fyrir sérfræðinga I kr. 15.600
  b) Fyrir sérfræðinga II kr. 13.900
  c) Fyrir sérfræðinga III kr. 12.300

2. gr.

Skordýra- og sveppagreiningar.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir greiningu á skordýrum og myglusveppum sam­kvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.

Gjaldið skal vera kr. 3.100 fyrir skordýragreiningu til almennings.

Fyrir greiningu á myglusveppum í mannvirkjum skal innheimta tímagjald skv. 1. gr. gjald­skrárinnar.

3. gr.

Útgáfa rita.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir útgáfu rita samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992. Gjald fyrir hvert rit skal vera eftirfarandi án vsk:

  a) Fyrir fjölrit Náttúrufræðistofnunar kr. 1.700
  b) Fyrir Blika kr. 2.000

4. gr.

Útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni sam­kvæmt. 5. gr. laga nr. 60/1992.

Gjaldið skal vera kr. 43.700.

5. gr.

Útflutningsleyfi fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi til almennings fyrir minja­gripi og uppstoppuð dýr samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.

Gjaldið skal vera kr. 6.300.

6. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 5. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.

Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 412/2018 fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 15. febrúar 2019.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Björgvin Valdimarsson.


B deild - Útgáfud.: 18. febrúar 2019