1. gr.
Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 685 frá 5. júlí 2018 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:
Fjarðabyggð.
Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Stöðvarfjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:
|
a) |
Ákvæði b-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi sveitarfélagi 1. apríl 2019. |
|
b) |
Ákvæði 1. málsl. c-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 1. apríl 2019. |
|
c) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 37% byggðakvóta byggðarlagsins skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar en 63% byggðakvóta byggðarlagsins skal skipt hlutfallslega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla á Stöðvarfirði, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018. |
|
d) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa á Stöðvarfirði þeim afla sem telja á til byggðakvóta Fjarðabyggðar vegna Stöðvarfjarðar, til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019. |
2. gr.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt eru felldar úr gildi áður auglýstar reglur Fjarðabyggðar um úthlutun byggðakvóta Stöðvarfjarðar á fiskveiðiárinu 2018/2019, samkvæmt auglýsingu nr. 218/2019.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. júní 2019.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Erna Jónsdóttir.
|