Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 462/2018

Nr. 462/2018 23. apríl 2018

GJALDSKRÁ
fyrir hundahald á Suðurnesjum.

Árgjald fyrir að halda hund, sbr. staflið b. í 1. mgr. 2. gr. samþykktar nr. 428/1987 um hundahald í Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Miðneshreppi, Gerðahreppi, Vatnsleysustrandarhreppi og Hafnahreppi, með síðari breytingum, skal vera kr. 17.120.

Allur kostnaður vegna föngunar hunds, sem tekinn er laus, svo sem útkallskostnaður, bifreiðakostnaður og búrleiga, skal greiddur af hluteigandi leyfishafa eða umráðamanni hunds sé um leyfislausan hund að ræða.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af sveitarstjórnum Reykjanesbæjar, Grindavíkurbæjar, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfélagsins Voga, með heimild í 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, ásamt síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 318/2016 fyrir hundahald á Suðurnesjum.

F.h. sveitarfélaga á Suðurnesjum, 23. apríl 2018,

Magnús Hinrik Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.


B deild - Útgáfud.: 8. maí 2018