Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1262/2016

Nr. 1262/2016 7. desember 2016

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2017.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2016, álagningarárið 2017, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

    kr.    
Mjólkurkýr   116.000
Holdakýr og naut   137.000
Kvígur, 1 1/2 árs og eldri   108.000
Geldneyti   74.000
Kálfar, yngri en 1/2 árs   12.000
Ær og sauðir   7.000
Hrútar   12.100
Gemlingar   9.000
Geitur   6.500
Hross á 14. vetri og eldri   18.000
Hross á 5. – 13. vetri   36.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri   170.000
Önnur nýtanleg reiðhross   90.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri   250.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri   350.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri   450.000
Tryppi á 2. – 4. vetri   12.300
Folöld   8.700
Hænsni, eldri en 6 mánaða   940
Varphænsni 6 mánaða og yngri   635
Kjúklingar   235
Endur   820
Gæsir   1.640
Kalkúnar   2.460
Gyltur   37.000
Geltir   55.000
Grísir   8.850
Kanínur   5.000
Minkar: Karldýr   7.500
  Kvendýr   5.000
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri   0

Reykjavík, 7. desember 2016.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2016