Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1196/2018

Nr. 1196/2018 10. desember 2018

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á tilkynningu um skil á ríki-fyrir-ríki skýrslu.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að félög hér á landi sem eru hluti af alþjóðlegri félagasamstæðu skuli eigi síðar en 21. janúar 2019 hafa tilkynnt um hvaða félag annist skil á ríki-fyrir-ríki skýrslu fyrir hönd samstæðunnar. Tilkynningarskylda samkvæmt auglýsingu þessari tekur til félaga með reiknings­ár sem lýkur á árinu 2018. Tilkynningunni skal skilað með því að senda eyðublaðið RSK 4.31 á net­fangið [email protected].

Allar fyrirspurnir vegna framangreindra skila má senda á netfangið [email protected].

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 91. gr. a laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 10. desember 2018.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 20. desember 2018