Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1604/2021

Nr. 1604/2021 14. desember 2021

GJALDSKRÁ
fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Fjallabyggð.

1. gr.

Fjallabyggð innheimtir gjald fyrir stofngjald fráveitu, fráveitu og hreinsun rotþróa í sveitar­félaginu skv. gjaldskrá þessari, sbr. IV. kafla samþykktar um fráveitur og rotþrær í Fjallabyggð nr. 1294/2011.

 

2. gr.

Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera:

Fyrir einbýlishús kr.   66.350 á hvert hús
Fyrir fjölbýlishús kr.   22.630 á hverja íbúð
Fyrir annað húsnæði kr.         83 á hvern m³ í húsnæðinu að 4.000 m³
  kr.         21 á hvern m³ > 4.000 m³

Stofngjald vegna tengingar í rotþró sveitarfélagsins:

Fyrir frístundahús kr. 473.700 á hvert hús

Ef um tvöfalt frárennsliskerfi er að ræða skulu ofangreindar tölur margfaldaðar með tveimur.

Gjald miðast við ákvörðun bæjarstjórnar við árlega gerð fjárhagsáætlunar.

 

3. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa sam­kvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001, með síðari breytingum.

Fráveitugjald skal nema 0,29% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fast­eigna­skatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

 

4. gr.

Rotþróargjald fyrir hverja rotþró skal vera eftirfarandi árlega:

  Stærð í lítrum Rotþróargjald í kr.
  0 – 2.000   8.800
  2.001 – 4.000 11.160
  4.001 – 6.000 12.280
  6.001 – 8.000 15.150
  8.001 – 10.000 20.170
  Rotþró > 10.000   6.240 pr. umframrúmmetra

Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra.

Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða kr. 3.370.

Sé ekki hægt að tæma rotþró í reglubundinni yfirferð og því þurfi að fara aukaferð, skal hús­eigandi greiða aukagjald sem nemur 50% af tæmingargjaldi til viðbótar við ofangreind rotþróargjöld.

 

5. gr.

Gjaldskrá þessa skal bæjarstjórn taka til endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert.

 

6. gr.

Gjald fyrir útselda vinnu starfsmanna í þjónustumiðstöð Fjallabyggðar er sem hér segir:

Starfsmaður Verð pr. klst.
Verkstjóri kr. 5.880 + vsk
Vélamaður kr. 5.370 + vsk
Iðnaðarmaður kr. 5.880 + vsk
Verkamaður kr. 4.810 + vsk

 

7. gr.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

 

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem var samþykkt af bæjarstjórn Fjallabyggðar með heimild í 15. gr. laga nr. 9/2009 um rekstur fráveitna og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, öðlast gildi 1. janúar 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1353/2020 fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Fjallabyggð.

Samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 1. desember 2021.

 

Fjallabyggð, 14. desember 2021.

 

Elías Pétursson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2021