Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1639/2022

Nr. 1639/2022 16. desember 2022

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um búsetu fyrir börn með miklar þroska- og geðraskanir, nr. 1038/2018.

1. gr.

Orðin „og ákvæðum reglugerðar um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu, nr. 1054/2010, einnig eftir því sem við á,“ í 3. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar falla brott.

 

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Fyrirsögn greinarinnar verður: Ábyrgð sveitarfélags.
  2. Orðin „, ákvæði reglugerðar um starfsleyfi til félagasamtaka, sjálfseignarstofnana og annarra einkaaðila sem hyggjast veita fötluðu fólki þjónustu“ í 1. mgr. falla brott.
  3. Í stað orðsins: „velferðarráðuneytinu“ í 3. mgr. kemur: Gæða- og eftirlitsstofnun velferðar­mála og Barna- og fjölskyldustofu.

 

3. gr.

Á eftir 3. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 3. gr. a, svohljóðandi:

Rekstrarleyfisskylda.

Einkaaðilum, sem hyggjast veita þjónustu á grundvelli laga nr. 38/2018 og reglugerðar þessarar er skylt að afla rekstrarleyfis Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála áður en byrjað er að veita þjón­ustuna.

Um málsmeðferð leyfisveitinga fer samkvæmt ákvæðum laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðar­mála, nr. 88/2021.

 

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðunum „Sveitarfélög annast“ í 1. mgr. kemur: innra.
  2. Í stað orðanna: „5. gr. laga“ í 1. mgr. kemur: 11. gr. laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðar­mála, nr. 88/2021.
  3. Í stað orðanna: „reglugerð um eftirlit og eftirfylgni vegna þjónustu við fatlað fólk með lang­varandi stuðningsþarfir“ í 2. mgr. kemur: lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðar­mála, nr. 88/2021.

 

5. gr.

Í stað orðsins „Þjónustuteymi“ í 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: Stuðnings­teymi.

 

6. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo með fyrirsögn:

Stuðningsáætlun.

Ef fyrir liggur samþykki barns og/eða foreldris fyrir samþættingu þjónustu og tilnefndur hefur verið málstjóri, sbr. lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021 skal stuðnings­teymi eftir því sem tilefni er til gera grein fyrir markmiðum með þjónustu sem veitt er á grundvelli laga nr. 38/2018 og reglugerðar þessarar í stuðningsáætlun.

Áður en barn verður 18 ára skal stuðningsteymi gera áætlun þar sem fjallað er um þjónustu fyrir barnið eftir að það nær fullorðinsaldri, eftir atvikum í samstarfi við þjónustuteymi, sbr. 12. gr. laga nr. 38/2018.

 

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 3. mgr. 21. gr. og 6. tölul. 1. mgr. 40. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Mennta- og barnamálaráðuneytinu, 16. desember 2022.

 

Ásmundur Einar Daðason.

Erna Kristín Blöndal.


B deild - Útgáfud.: 3. janúar 2023