Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1460/2023

Nr. 1460/2023 18. desember 2023

GJALDSKRÁ
leikskólans Bjarkatúns í Múlaþingi.

1. gr.

Almennt tímagjald er kr. 4.378 á mánuði.

Tímagjald fyrir forgangshópa er kr. 2.916 á mánuði.

Tímagjald fyrir leikskóladvöl umfram átta stundir er kr. 11.291 á mánuði fyrir foreldra í sambúð og kr. 7.530 á mánuði fyrir einstæða foreldra.

Systkinaafsláttur er 50% fyrir annað barn og frítt er fyrir þriðja barn. Systkinaafsláttur er einnig veittur ef annað barn er hjá dagforeldri.

  Foreldrar giftir/sambúð Einstæðir foreldrar
Dvalarstundir Almennt gjald kr. Afsláttargjald kr., 2. barn 50% Forgangsgjald kr. Afsláttargjald kr., 2. barn 50%
4 tímar 17.512   8.756 11.662   5.831
5 tímar 21.890 10.945 14.578   7.289
6 tímar 26.268 13.134 17.494   8.747
7 tímar 30.646 15.323 20.409 10.205
8 tímar 35.024 17.512 23.325 11.663
9 tímar 46.315 23.158 30.855 15.428

 

2. gr.

Gjald fyrir skólamáltíðir er hér sem segir:

Morgunverður kr. 2.205
Ávaxtagjald kr. 1.096
Hádegisverður kr. 6.394
Nónhressing kr. 3.385

Ekki er veittur afsláttur af fæði.

 

3. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með stoð í 27. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og öðlast gildi 1. janúar 2024. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá leikskólans Bjarkatúns í Múlaþingi nr. 1673/2022.

Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 13. desember 2023.

 

Egilsstöðum, 18. desember 2023.

 

Björn Ingimarsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 21. desember 2023