Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 705/2019

Nr. 705/2019 26. júlí 2019

REGLUGERÐ
um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæðum út af Vestfjörðum, suðursvæði og í Faxaflóa.

1. gr.

Frá og með 27. júlí 2019 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði út af Vestfjörðum, suðursvæði og í Faxaflóa, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

Vestfirðir, suðursvæði:

  1. 65°30,00´N – 23°00,00´V
  2. 65°30,00´N – 25°00,00´V
  3. 66°00,00´N – 25°00,00´V
  4. 66°00,00´N – 23°00,00´V

Faxaflói:

  1. 64°02,00´N – 22°18,00´V
  2. 64°02,00´N – 23°00,00´V
  3. 64°21,00´N – 23°00,00´V
  4. 64°21,00´N – 22°18,00´V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2019. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 672/2019, um bann við veiðum á sæbjúgum í Faxaflóa.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. júlí 2019.

F.h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Erna Jónsdóttir.

Guðmundur Jóhannesson.


B deild - Útgáfud.: 26. júlí 2019