Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1/2021

Nr. 1/2021 6. janúar 2021

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á tilkynningu um skil á ríki-fyrir-ríki skýrslu.

Tilkynningaskyldir aðilar, sbr. 4. og 5. mgr. 91. gr. a. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu innan mánaðar frá lokum reikningsárs á árinu 2021 tilkynna ríkisskattstjóra hvaða félag í samstæð­unni skili ríki-fyrir-ríki skýrslu um skattskil og um heimilisfestarríki þess félags. Jafnframt skal tilgreina sérstaklega ef hið tilkynningarskylda félag er móðurfélag heildarsamstæðunnar eða stað­göngu­félag móðurfélags.

Tilkynningu samkvæmt auglýsingu þessari skal skilað með því að senda eyðublaðið RSK 4.31 á netfangið [email protected].

Allar fyrirspurnir vegna framangreindra skila má senda á netfangið [email protected].

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 91. gr. a laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

 

Reykjavík, 6. janúar 2021.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 7. janúar 2021