Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 465/2012

Nr. 465/2012 14. maí 2012
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 108/2009 um kröfur varðandi beitingu reglna um samskipti milli flugstjórnardeilda við skeytasendingar vegna flugs.

1. gr.

6. gr. orðast svo:

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB), með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 633/2007 um kröfur vegna beitingar samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs sem eru notaðar við tilkynningu, samræmingu og yfirfærslu upplýsinga um flug milli flugstjórnardeilda, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 167/2007, frá 7. desember 2007. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11, 19. febrúar 2009, bls. 166.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 283/2011 um breytingu á reglu­gerð (EB) nr. 633/2007 að því er varðar umbreytingarfyrirkomulagið sem um getur í 7. gr., sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 151/2011, frá 2. des­ember 2011. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 12, 1. mars. 2012, bls. 303.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 14. maí 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. maí 2012