Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1016/2019

Nr. 1016/2019 19. nóvember 2019

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um lyfjamál (XVI).

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem vísað er til í lið 15x í XIII. kafla II. viðauka við EES-samninginn, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2019 frá 14. júní 2019, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/729 frá 26. febrúar 2018 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 273/2004 og reglugerð ráðsins (EB) nr. 111/2005 að því er varðar að færa tiltekin forefni fíkniefna á skrá yfir skráð efni. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 49, frá 20. júní 2019, bls. 185.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 50. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 19. nóvember 2019.

Svandís Svavarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 25. nóvember 2019