Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1202/2023

Nr. 1202/2023 7. nóvember 2023

REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 581/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliður, 6. og 7. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2293 frá 18. nóvember 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar skrá yfir þriðju lönd með samþykkta eftirlitsáætlun fyrir notkun lyfjafræðilega virkra efna, hámarksgildi leifa lyfjafræðilega virkra efna og varnarefna og hámarksgildi aðskotaefna.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/514 frá 8. mars 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar mikið unnar afurðir, skrána yfir þriðju lönd með samþykkta eftirlitsáætlun og færslu Moldóvu á skrána yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af eggjum sem eru ætluð til setningar á markað sem egg í A-flokki til Sambandsins.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar sem nefndar eru í 1. gr. eru birtar á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjöl við auglýsingu nr. 14/2023.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýra­lækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 7. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 14. nóvember 2023