Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 160/2018

Nr. 160/2018 12. febrúar 2018

AUGLÝSING
(IV) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 604 frá 3. júlí 2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Strandabyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 604/2017 gilda um úthlutun byggðakvóta Hólmavíkur með eftirfarandi við­auka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 25% úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 75% skal skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta innan byggðarlagsins á tímabilinu frá 1. sept­ember 2017 til 31. ágúst 2018.

Blönduósbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 604/2017 gilda um úthlutun byggðakvóta Blönduóss með eftirfarandi við­auka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipta 75% úthlutaðs byggðakvóta jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar, og 25% skal skipt í hlutfalli við hlutdeild í Húnaflóarækju miðað við hlutdeild skipanna 1. september 2017.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2017 til 31. ágúst 2018 í Blönduós­höfn eða Skagastrandarhöfn.

Sveitarfélagið Árborg.

Ákvæði reglugerðar nr. 604/2017 gilda um úthlutun byggðakvóta Eyrarbakka og Stokkseyrar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfalls­lega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botn­fiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tíma­bilinu 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.
  b) 2. mgr. 4. gr. fellur brott.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa, þeim afla sem telja á til byggðakvóta. til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.

Breiðdalshreppur.

Ákvæði reglugerðar nr. 604/2017 gilda um úthlutun byggðakvóta Breiðdalsvíkur með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 25% byggðakvótans skiptist jafnt milli skipa og 75% skipt hlutfallslega til sömu skipa af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðar­lags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorsk­ígildum talið, innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. sept­ember 2016 til 31. ágúst 2017.

Sveitarfélagið Vogar.

Ákvæði reglugerðar nr. 604/2017 gilda um úthlutun byggðakvóta Sveitarfélagsins Voga með eftir­farandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkom­andi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorsk­ígildum talið, á tímabilinu 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.

Fjarðabyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 604/2017 gilda um úthlutun byggðakvóta Mjóafjarðar og Stöðvarfjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði b-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðar­lagi 4. desember 2017.
  b) Ákvæði 1. málsl. c-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lög­aðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 4. desember 2017.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 37% byggðakvóta í Fjarða­byggð skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar en 63% byggðakvótans í Fjarða­byggð skal skipt hlutfallslega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tíma­bilinu 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.
  d) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa, þeim afla sem telja á til byggðakvóta, innan viðkomandi byggðarlags til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.

Sandgerðisbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 604/2017 gilda um úthlutun byggðakvóta Sandgerðisbæjar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 30% byggðakvótans skiptist jafnt milli skipa þó ekki meira í þorsk­ígildum talið en viðkomandi bátur landaði í þorskígildum í Sandgerði á fisk­veiði­árinu 2016/2017 og 70% skipt hlutfallslega til sömu skipa af því aflamarki sem fallið hefur til Sandgerðis, miðað við allan landaðan botnfiskafla í Sandgerði í tegundum sem hafa þorsk­ígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa í Sandgerði þeim afla sem telja á til byggðakvóta Sandgerðis og til vinnslu innan Sandgerðisbæjar á tímabilinu frá 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. febrúar 2018.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Annas Jón Sigmundsson.


B deild - Útgáfud.: 13. febrúar 2018