Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 76/2018

Nr. 76/2018 11. janúar 2018

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2018.

  1. Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2018, sbr. 5. gr. reglu­gerðar nr. 1155/2017, er til 31. maí 2018 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið [email protected] fyrir lok umsóknar­frests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekju­ársins 2017 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2016, og að álögð gjöld 2018 muni af þeim sökum að lágmarki verða 100.000 kr. lægri en við álagningu 2017.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2018 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2018 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku á ákvörðun ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar.
  5. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1155/2017 og taka þegar gildi.

Reykjavík, 11. janúar 2018.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2018