1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
1.4 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/601 frá 24. mars 2025 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2022/2319 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins á Haítí, sbr. fylgiskjal 1.4. |
2.4 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2025/608 frá 24. mars 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2022/2309 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins á Haítí, sbr. fylgiskjal 2.4. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 30. apríl 2025.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
|