Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1188/2017

Nr. 1188/2017 29. desember 2017

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað „500.000 kr.“ í 5. mgr. kemur: 520.000 kr.
  2. Eftirfarandi breytingar verða á 6. mgr.:
    1. Í stað „118.335 kr.“ kemur: 123.897 kr.
    2. Í stað „164.003 kr.“ kemur: 171.711 kr.

2. gr.

Í stað „71.563 kr.“ í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar kemur: 74.926 kr.

3. gr.

Í stað „164.003 kr.“ í 2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar kemur: 171.711 kr.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. mgr. 13. gr., 5. mgr. 18. gr., 5. mgr. 19. gr. og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2018 og á við um foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2018 eða síðar.

Velferðarráðuneytinu, 29. desember 2017.

Ásmundur Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2017