Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 455/2025

Nr. 455/2025 29. apríl 2025

REGLUR
um vörpun lánshæfismats við útreikning á eiginfjárkröfum vegna útlánaáhættu og verðbréfunar.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu á grund­velli staðalaðferðar í samræmi við 2. kafla, bálk II, í þriðja hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sbr. lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Reglurnar gilda einnig um fjármálafyrirtæki sem reikna eigin­fjárkröfur fyrir verðbréfaðar stöður í samræmi við 5. kafla, bálk II, í þriðja hluta sömu reglu­gerðar.

 

2. gr.

Vörpun lánshæfismats lánshæfismatsfyrirtækja vegna útlánaáhættu og verðbréfunar.

Fjármálafyrirtæki sem reiknar eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu og verðbréfunar skal varpa lánshæfismati frá lánshæfismatsfyrirtæki samkvæmt reglugerðum (ESB) 2016/1799 og 2016/1801, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með vísan til 2. gr. gilda eftirtaldar reglugerðir hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1799 frá 7. október 2016, um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar vörpun lánshæfiseinkunna lánshæfis­mats­fyrirtækja vegna útlánaáhættu í samræmi við 1. og 3. mgr. 136. gr. reglugerðar Evrópuþings­ins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 92 frá 20. desember 2023, bls. 4-19.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1801 frá 11. október 2016, um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar vörpun lánshæfiseinkunna lánshæfis­mats­fyrirtækja vegna verðbréfunar í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 92 frá 20. desember 2023, bls. 20-26.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/634 frá 24. apríl 2018 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1799 að því er varðar vörpunartöflur sem sýna hvernig mat á útlánaáhættu utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja samsvarar láns­hæfis­þrepunum sem sett eru fram í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 83/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 77. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 388-394.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2028 frá 29. nóvember 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1799 að því er varðar vörpunartöflur sem sýna hvernig mat á útlánaáhættu utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja samsvarar láns­hæfis­þrepunum sem sett eru fram í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 114/2021 frá 19. mars 2021 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 5 frá 18. janúar 2024, bls. 47. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 30. mars 2023, bls. 322-328.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2005 frá 16. nóvember 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1799 að því er varðar vörpunartöflur sem sýna hvernig mat á útlánaáhættu utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja samsvarar láns­hæfis­þrepunum sem sett eru fram í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 140/2022 frá 29. apríl 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 93. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58 frá 1. ágúst 2024, bls. 74-81.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2365 frá 2. desember 2022 um breytingu á tæknilegum framkvæmdarstöðlum sem mælt er fyrir um í framkvæmdar­reglugerð (ESB) 2016/1801 að því er varðar hvernig vörpunartöflur samsvara lánshæfismati utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja fyrir verðbréfun í samræmi við reglugerð Evrópu­þingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 156/2023 frá 13. júní 2023 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 87 frá 30. nóvember 2023, bls. 26.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1872 frá 1. júlí 2024 um breytingu á tæknilegum framkvæmdarstöðlum sem mælt er fyrir um í framkvæmdar­reglugerð (ESB) 2016/1799 að því er varðar vörpunartöflur sem tilgreina nánar hvernig mat á útlána­áhættu utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja samsvarar lánshæfisþrepunum sem sett eru fram í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá 293/2024 frá 6. desember 2024.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum fram­kvæmda­stjórnarinnar (ESB) 2022/2365 og 2024/1872 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32022R2365, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 312, þann 5. desember 2022, bls. 101-108;
  2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX%3A32024R1872, birt í OJ, deild L, undirdeild R, þann 5. júlí 2024.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 27. og 43. tölul. 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármála­fyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Með gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 1091/2023 um vörpun lánshæfismats við útreikning á eiginfjárkröfum vegna útlánaáhættu og verðbréfunar.

 

Seðlabanka Íslands, 29. apríl 2025.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Gísli Óttarsson
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. apríl 2025