Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 307/2021

Nr. 307/2021 18. mars 2021

AUGLÝSING
um (1.) breytingu á auglýsingu um (1.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, nr. 271/2021.

1. gr.

Ákvæði a-liðar 1. mgr. 1. gr. vegna Sveitarfélagsins Skagastrandar (breyting á almennum skil­yrðum, breyting á viðmiðun úthlutunar, löndunarskylda innan byggðarlags) breytist og verður svo­hljóð­andi:

 

a)

Ákvæði c-liðar 1. mgr. 1. gr. breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lög­aðila með póstfang og lögheimili í sveitarfélaginu 1. júlí 2020.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. mars 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 18. mars 2021