Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 280/2019

Nr. 280/2019 8. mars 2019

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

17. mgr. 86. gr. reglnanna breytist og orðast svo:

Diplómanám í fjölmenningu og málefnum innflytjenda og flóttafólks er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu BA-prófi í félagsráðgjöf. Að jafnaði er krafist fyrstu einkunnar (7,25).

2. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 8. mars 2019.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 25. mars 2019