1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 16. tölul., svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2684 frá 2. febrúar 2024 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/127 að því er varðar kröfur er varða prótín í ungbarnablöndum og stoðblöndum sem eru framleiddar úr vatnsrofsmyndefnum prótína. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 576.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. maí 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
|