Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1318/2019

Nr. 1318/2019 17. desember 2019

GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Dalvíkurbyggð.

1. gr.

Við skráningu hunda skal greiða skráningargjald kr. 3.037.

2. gr.

Árlega skal greiða eftirlitsgjald vegna hunda kr. 9.344. Gjaldið á að standa undir kostnaði vegna ormahreinsunar en ef framvísað er staðfestingu á að ormahreinsun hafi verið framkvæmd lækkar gjaldið um 50%.

3. gr.

Af hundum sem handsamaðir eru og fluttir í gæludýrageymslu Dalvíkurbyggðar sam­kvæmt 14. gr. samþykktar um hundahald í Dalvíkurbyggð nr. 16/2013 skal eigandi greiða handsömunar-, fóður- og vist­unargjald áður en honum er afhentur hundurinn á ný. Ef hundur er ekki örmerktur samkvæmt 9. gr. sömu samþykktar ber einnig að greiða þann kostnað gegn beiðni til dýralækna sem framkvæma slíkt.

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta kr. 5.838 vegna handsömunar og gjald fyrir fóður og vistun samkvæmt kostnaði. Gjald fyrir örmerkingu hunda fer eftir gjaldskrá viðkom­andi dýralæknis hverju sinni.

5. gr.

Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, með heimild í 5. mgr. 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 180/2019.

6. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskránni eru uppreiknuð um 2,5% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar að hausti 2019 og miðast við neysluvísitölu, grunnur 1988, september 2019 (470,5 stig).

Samþykkt í landbúnaðarráði Dalvíkurbyggðar 13. nóvember 2019.

Samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 29. nóvember 2019.

Dalvík, 17. desember 2019.

Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 7. janúar 2020