Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 79/2017

Nr. 79/2017 28. september 2017

LÖG
um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, með síðari breytingum (viðmiðunardagur umsóknar um kosningarrétt).

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

    Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. og 3. mgr. 27. gr. skal umsókn um kosningarrétt skv. b-lið 2. mgr. 1. gr. sem berst Þjóðskrá Íslands í síðasta lagi 11. október 2017 gilda frá dagsetningu bréfs hennar um að umsækjandi skuli tekinn á kjörskrá. Að öðru leyti fer um kosningarréttinn skv. 2. gr. laganna.

    Fullnægjandi umsókn um að verða tekinn á kjörskrá sem berst Þjóðskrá Íslands eftir 11. október 2017 gildir frá 1. desember 2017.

    Umsókn um að verða tekinn á kjörskrá sem barst Þjóðskrá Íslands eftir 1. desember 2016 og var fullnægjandi skal nú gilda frá gildistöku þessa ákvæðis. Að öðru leyti fer um kosningarréttinn skv. 2. gr. laganna. Þjóðskrá Íslands tilkynnir umsækjanda þessa breytingu og hlutaðeigandi sveitar­stjórn.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

3. gr.

    Lög þessi falla úr gildi 1. desember 2017.

Gjört í Reykjavík, 28. september 2017.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Sigríður Á. Andersen.


A deild - Útgáfud.: 29. september 2017