Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 673/2019

Nr. 673/2019 17. júlí 2019

AUGLÝSING
um samþykkt breytingar á deiliskipulagi í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:

Fossatunga 9-15.
Breytingin felur í sér að í stað raðhúss með fjórum íbúðum, verður heimilt að byggja fimm íbúða raðhús. Raðhúsagerðin R-IID breytist úr því að vera með 11 m breidd á hverri raðhúsaeiningu í að verða 9 m breidd á hverja einingu. Útbyggingarmöguleikar verði 2,5 m á báðar langhliðar í stað 2,5 m og 3,0 m áður.

Ofangreind breyting hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 17. júlí 2019,

Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 18. júlí 2019