Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 577/2013

Nr. 577/2013 18. júní 2013
REGLUGERÐ
um snyrtivörur.

1. gr.

Lögbært yfirvald.

Umhverfisstofnun gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds, sbr. 34. gr. reglugerðar (EB) nr. 1223/2009, um snyrtivörur.

2. gr.

Upplýsingar til eitrunarmiðstöðvar.

Eitrunarmiðstöð Landspítala háskólasjúkrahúss skal taka við upplýsingum um tilkynntar snyrtivörur í samræmi við 6. mgr. 13. gr. reglugerðar (EB) nr. 1223/2009.

3. gr.

Merkingar.

Merkingar á umbúðum snyrtivara, sbr. 19. gr. reglugerðar (EB) nr. 1223/2009, skulu vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku.

Viðvörunarmerkingar skv. dálki i í III. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1223/2009 skulu vera á íslensku. Þó er heimilt að viðvörunarmerkingar vegna flúorinnihalds í tannkremi séu á ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku. Ennfremur er heimilt að viðvörunar­merkingar vegna snytivara séu á ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku ef merk­ingin er eingöngu ætluð til að taka fram að snyrtivaran innihaldi tiltekið innihalds­efni.

4. gr.

Framleiðsla.

Fyrirtæki sem framleiðir snyrtivörur skal hafa starfsleyfi í gildi frá viðkomandi heilbrigðis­nefnd, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglu­gerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun.

5. gr.

Eftirlit.

Um eftirlit með reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla efnalaga nr. 61/2013, sbr. og 2. tölul. 5. gr. og 2. tölul. 6. gr.

6. gr.

Viðurlög.

Um brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar fer samkvæmt XIV. kafla efnalaga nr. 61/2013.

7. gr.

Innleiðing EES-gerða.

Reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins frá 30. nóvember 2009 nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1, XVI. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2013, þann 5. apríl 2013 öðlast gildi hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 28. mars 2013, bls. 524 til 674.

8. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast gildi 11. júlí 2013. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 748/2003 um snyrtivörur.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 18. júní 2013.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

B deild - Útgáfud.: 24. júní 2013