Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1463/2021

Nr. 1463/2021 6. desember 2021

AUGLÝSING
um (1.) breytingu á auglýsingu nr. 947/2016, um grunnstuðla við mælingar á vinnslunýtingu um borð í skipum sem vinna afla um borð.

1. gr.

Nýtingarstuðlar grálúðu; -sporðskorin, -hausskorin, -haus- og sporðskorin og -flök í töflu í 2. gr. falla brott.

 

2. gr.

Auglýsing þessi er sett samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 54/2003, um mælingar á vinnslu­nýtingu um borð í skipum sem vinna afla um borð. Auglýsingin öðlast gildi 1. janúar 2022.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. desember 2021.

 

Svandís Svavarsdóttir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 20. desember 2021