1. gr. 3. mgr. 3. gr. reglnanna verður þannig: Auk rektors eiga sæti í háskólaráði til tveggja ára í senn: a) Tveir fulltrúar háskólasamfélagsins, tilnefndir af háskólafundi. b) Einn fulltrúi nemenda, tilnefndur af Félagi stúdenta við Háskólann á Akureyri. c) Einn fulltrúi tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðherra. d) Tveir fulltrúar tilnefndir af þeim ofangreindu fulltrúum sem fyrir eru í háskólaráði. 2. gr. 5. mgr. 3. gr. reglnanna verður þannig: Þeir sem valdir eru sem fulltrúar háskólasamfélagsins í háskólaráð skulu, þegar tilnefning á sér stað, vera starfsmenn HA í fullu starfi, en kjörgengir eru þó ekki rektor, forsetar og varaforsetar skóla eða fræðasviða, framkvæmdastjóri, gæðastjóri og forstöðumenn sviða háskólaskrifstofu. 3. gr. 7. mgr. 3. gr. reglnanna verður þannig: Háskólafundur kýs á milli þeirra sem eru í kjöri til að taka sæti sem fulltrúar háskólasamfélagsins í háskólaráði, en fulltrúar nemenda á háskólafundi hafa þó ekki atkvæðisrétt um það mál. 4. gr. Stafliður b í 3. mgr. 11. gr. reglnanna verður þannig: b) Úr hópi fastra kennara tilnefna fræðasvið skólans hvert um sig fimm fulltrúa, talsmaður Félags prófessora við ríkisháskóla sem starfa við HA tilnefnir einn, stjórn Félags háskólakennara á Akureyri tilnefnir einn og starfsmenn við stjórnsýslu háskólans tilnefna tvo og skulu þeir allir, auk varamanna, tilnefndir eftir kosningu, ýmist á meðal viðkomandi starfsmanna á fræðasviði, meðal viðkomandi félagsmanna, og meðal starfsfólks við stjórnsýslu, til tveggja ára í senn. 5. gr. Reglur þessar, samþykktar af háskólaráði 28. október 2011, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 með breytingum nr. 50/2010 og öðlast þegar gildi. Háskólanum á Akureyri, 17. nóvember 2011. Stefán B. Sigurðsson rektor. Sigurður Kristinsson, varaforseti háskólaráðs. |